{"id":236,"date":"2015-07-29T15:15:30","date_gmt":"2015-07-29T15:15:30","guid":{"rendered":"http:\/\/nsve.is\/?p=236"},"modified":"2015-07-29T17:52:44","modified_gmt":"2015-07-29T17:52:44","slug":"a-thingvollum-er-frelsid-afstaett","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/nsve.is\/?p=236","title":{"rendered":"\u00c1 \u00deingv\u00f6llum er frelsi\u00f0 afst\u00e6tt!"},"content":{"rendered":"<p><em>-eftir Stef\u00e1n Erlendsson.<\/em><\/p>\n<p><strong>Eitthvert \u00e1\u00fereifanlegasta d\u00e6mi\u00f0 um \u00fea\u00f0 si\u00f0leysi og spillingu sem um langan aldur hefur vi\u00f0gengist \u00ed \u00edslenskum stj\u00f3rnm\u00e1lum er me\u00f0fer\u00f0 Al\u00feingis <a href=\"http:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/stefan-erlendsson.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"  wp-image-238 alignright\" src=\"http:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/stefan-erlendsson.jpg\" alt=\"stefan erlendsson\" width=\"200\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/stefan-erlendsson.jpg 261w, https:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/stefan-erlendsson-200x300.jpg 200w\" sizes=\"auto, (max-width: 200px) 100vw, 200px\" \/><\/a>\u00e1 helgasta s\u00f6gusta\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, \u00deingv\u00f6llum. S\u00fa r\u00e1\u00f0st\u00f6fun \u00deingvallanefndar a\u00f0 veita \u00fatv\u00f6ldum vinum nefndarmanna, tengdam\u00f6nnum \u00feeirra og \u00f6\u00f0rum g\u00e6\u00f0ingum heimild til a\u00f0 reisa s\u00e9r sumarb\u00fasta\u00f0i innan \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sins flj\u00f3tlega eftir stofnun hans og n\u00e6stu \u00e1ratugina er hneisa. \u00dearna var um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a gr\u00f3fa misbeitingu valds og \u00f3r\u00e9ttm\u00e6ta mismunun sem almenningur hefur m\u00e1tt \u00feola af hendi r\u00edkisvaldsins allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an. \u201e\u00dej\u00f3\u00f0legri spilling er vandfundin,\u201c eins og \u00c1sgeir Sverrisson bla\u00f0ama\u00f0ur kemst a\u00f0 or\u00f0i \u00ed grein sem birtist \u00ed Morgunbla\u00f0inu \u00ed byrjun \u00feessarar aldar.<\/strong><\/p>\n<h4>Fri\u00f0un \u00deingvalla<\/h4>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1928 voru sam\u00feykkt l\u00f6g fr\u00e1 Al\u00feingi um a\u00f0 \u201e\u00deingvellir vi\u00f0 \u00d6xar\u00e1 og grenndin \u00fear skulu vera fri\u00f0l\u00fdstur helgista\u00f0ur allra \u00cdslendinga\u201c og tilteki\u00f0: \u201ehi\u00f0 fri\u00f0l\u00fdsta land skal vera undir vernd Al\u00feingis og \u00e6vinlega eign \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. \u00dea\u00f0 m\u00e1 aldrei selja e\u00f0a ve\u00f0setja.\u201c L\u00f6gin t\u00f3ku gildi \u00ed upphafi \u00e1rs 1930 og samkv\u00e6mt \u00feeim m\u00e1tti \u201eekkert jar\u00f0rask, h\u00fasbyggingar, vegi, raflei\u00f0slur e\u00f0a \u00f6nnur mannvirki&#8230;gera \u00e1 hinu fri\u00f0l\u00fdsta sv\u00e6\u00f0i e\u00f0a \u00ed landi jar\u00f0anna K\u00e1rasta\u00f0a, Br\u00fasasta\u00f0a, Svartagils og Gj\u00e1bakka nema me\u00f0 leyfi \u00deingvallanefndar.\u201c<\/p>\n<p>Ef rifju\u00f0 eru upp umm\u00e6li \u00feeirra al\u00feingismanna sem \u00e1 s\u00ednum t\u00edma \u00e1ttu mestan \u00fe\u00e1tt \u00ed lagasm\u00ed\u00f0inni er engum vafa undirorpi\u00f0 a\u00f0 me\u00f0 \u00feessu laga\u00e1kv\u00e6\u00f0i var \u00deingvallanefnd fali\u00f0 vald til \u00feess fyrst og fremst a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 sumarb\u00fasta\u00f0ir v\u00e6ru reistir \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu sem \u00fe\u00e1 afmarka\u00f0i sj\u00e1lfan \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inn og j\u00f6r\u00f0unum fj\u00f3rum sem fri\u00f0a\u00f0ar voru vegna hans. Til d\u00e6mis minntist J\u00f3nas J\u00f3nsson fr\u00e1 Hriflu, sem var einn helsti hvatama\u00f0ur fri\u00f0unarinnar, \u00e1 eina b\u00fasta\u00f0inn sem \u00fe\u00e1 vir\u00f0ist hafa veri\u00f0 kominn \u00e1 \u00deingvelli \u00ed umr\u00e6\u00f0unum um fri\u00f0unarl\u00f6gin og sag\u00f0i: \u201eOg \u00fe\u00f3 a\u00f0 margt megi segja um einstakra manna h\u00fasi\u00f0 \u00ed F\u00f6grubrekku, \u00fe\u00e1 hefur \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 unni\u00f0 \u00fea\u00f0 gagn a\u00f0 opna augu almennings fyrir \u00fev\u00ed hvernig ekki eigi a\u00f0 byggja \u00ed umhverfi \u00deingvalla.\u201c J\u00f3nas sag\u00f0i einnig \u00ed umr\u00e6\u00f0unum 1928: \u201e\u00dea\u00f0, sem vakir fyrir \u00feeim m\u00f6nnum, sem ekki vilja spilla \u00fatliti \u00deingvalla, er \u00fea\u00f0, a\u00f0 n\u00e1tt\u00faran og hennar listasm\u00ed\u00f0i fr\u00e1 \u00f6r\u00f3fi alda f\u00e1i a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn sem best.\u201c<\/p>\n<p>Annar helsti frumm\u00e6landi fri\u00f0unarlaganna fr\u00e1 1928, Bernhar\u00f0 Stef\u00e1nsson, komst svo a\u00f0 or\u00f0i \u00ed umr\u00e6\u00f0unum: \u201eAnna\u00f0 er \u00fea\u00f0 l\u00edka, a\u00f0 hugsa m\u00e6tti s\u00e9r \u00feau mannvirki ger\u00f0 \u00ed n\u00e1grenni \u00deingvalla, sem ekki \u00e6ttu heima \u00e1 \u00feeim sta\u00f0&#8230;.\u00deess konar mannvirki, \u00fe\u00f3 g\u00f3\u00f0 kunni a\u00f0 vera \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r, eiga ekki vi\u00f0 \u00e1 \u00feessum fornhelga sta\u00f0. Sama er, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feau s\u00e9u ekki \u00ed sj\u00e1lfri \u00feinghelginni, ef \u00feau eru \u00ed \u00feeirri n\u00e1l\u00e6g\u00f0, a\u00f0 \u00feau blasa vi\u00f0 fr\u00e1 \u00deingv\u00f6llum, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 eru \u00feau til helgispjalla. Ef nokkur sta\u00f0ur er h\u00e9r \u00e1 landi, \u00fear sem n\u00e1tt\u00faran \u00e1 a\u00f0 vera \u00ed fullum fri\u00f0i, og \u00e1n \u00feess a\u00f0 henni s\u00e9 raska\u00f0 af m\u00f6nnum, \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 \u00deingvellir.\u201c<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h4>Sumarb\u00fasta\u00f0irnir \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum<\/h4>\n<p>J\u00f3nas fr\u00e1 Hriflu gegndi formennsku \u00ed \u00deingvallanefnd fr\u00e1 upphafi 1928 til 1946 og lag\u00f0i nefndina undir sitt eigi\u00f0 r\u00e1\u00f0uneyti, d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0. Eftir a\u00f0 J\u00f3nas f\u00f3r a\u00f0 starfa \u00ed \u00deingvallanefnd snerist honum allr\u00e6kilega hugur og \u00ed bla\u00f0agrein \u00ed lok \u00e1rs 1930 vi\u00f0ra\u00f0i hann \u00fe\u00e1 sko\u00f0un a\u00f0 ekkert v\u00e6ri \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0 reistir yr\u00f0u nokkrir sumarb\u00fasta\u00f0ir su\u00f0ur af Valh\u00f6ll og Konungsh\u00fasi sem h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 f\u00e6r\u00f0 vestur fyrir \u00d6xar\u00e1. Sl\u00edkt hef\u00f0i engin \u00e1hrif \u00e1 svipm\u00f3t \u00deingvalla. Og \u00fea\u00f0 var\u00f0 \u00far a\u00f0 l\u00f3\u00f0um var \u00fathluta\u00f0 undir b\u00fasta\u00f0i me\u00f0 vatninu \u00fear sem heitir Valhallarst\u00edgur og Rau\u00f0ukusunes \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r v\u00e6ru augl\u00fdstar og einnig var veitt leyfi til \u00feess a\u00f0 leigja sumarb\u00fasta\u00f0al\u00f3\u00f0ir \u00e1 j\u00f6r\u00f0unum vestan \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sins. Aldarfj\u00f3r\u00f0ungi s\u00ed\u00f0ar voru yfir fimmt\u00edu b\u00fasta\u00f0ir \u00e1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i. \u00de\u00e1 var fari\u00f0 a\u00f0 leita h\u00f3fanna um l\u00f3\u00f0ir austan \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sins, \u00ed landi Gj\u00e1bakka. J\u00f6r\u00f0in var \u00ed einkaeign og fri\u00f0u\u00f0 samkv\u00e6mt l\u00f6gunum fr\u00e1 1928. Eigandinn k\u00e6r\u00f0i sig ekki um sumarb\u00fasta\u00f0i \u00e1 landi s\u00ednu svo a\u00f0 ekki n\u00e1\u00f0ist samkomulag vi\u00f0 hann. En \u00deingvallanefnd var heimilt a\u00f0 kaupa j\u00f6r\u00f0ina e\u00f0a taka hana eignarn\u00e1mi og var \u00fea\u00f0 gert \u00e1ri\u00f0 1947. B\u00e6ndur bjuggu \u00fear \u00e1fram \u00ed r\u00faman \u00e1ratug en \u00feegar fj\u00e1rb\u00faskapur lag\u00f0ist af \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni var h\u00fan girt. \u00c1 \u00feeim t\u00edma var \u00feegar b\u00fai\u00f0 a\u00f0 reisa tvo b\u00fasta\u00f0i \u00ed Gj\u00e1bakkalandi og var annar \u00feeirra \u00ed eigu G\u00edsla J\u00f3nssonar al\u00feingismanns sem seti\u00f0 haf\u00f0i \u00ed \u00deingvallanefnd.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1966 \u00e1kva\u00f0 nefndin a\u00f0 heimila byggingu r\u00famlega 30 sumarb\u00fasta\u00f0a og \u00fathluta\u00f0i sem fyrr l\u00f3\u00f0um \u00e1n augl\u00fdsingar, flestum \u00ed Gj\u00e1bakkalandi. N\u00fa fyrst t\u00f3k steininn \u00far og \u00ed kj\u00f6lfar mikillar gagnr\u00fdni s\u00e1 \u00deingvallanefnd sitt \u00f3v\u00e6nna og dr\u00f3 l\u00f3\u00f0a\u00fathlutanirnar til baka og flestir \u00feeir sem fengi\u00f0 h\u00f6f\u00f0u l\u00f3\u00f0ir \u00ed Gj\u00e1bakkalandi skilu\u00f0u \u00feeim. \u00deetta var\u00f0 s\u00ed\u00f0an til \u00feess a\u00f0 st\u00f3rfelldri \u00fathlutun sumarb\u00fasta\u00f0al\u00f3\u00f0a \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum var h\u00e6tt.<\/p>\n<p>D\u00e6mi eru um a\u00f0 \u00deingvallanefnd hafi \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sumarb\u00fasta\u00f0irnir undir Hallinum og \u00ed Gj\u00e1bakkalandi ver\u00f0i fjarl\u00e6g\u00f0ir e\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0urinn leysi \u00fe\u00e1 til s\u00edn me\u00f0 einhverjum h\u00e6tti. \u00dea\u00f0 hefur meira a\u00f0 segja gengi\u00f0 svo langt a\u00f0 sumarb\u00fasta\u00f0aeigendum var tilkynnt um sl\u00edk \u00e1form br\u00e9flei\u00f0is en ekki hefur or\u00f0i\u00f0 af neinum framkv\u00e6mdum. Flestir l\u00f3\u00f0asamningar voru upphaflega ger\u00f0ir til 50 \u00e1ra en \u00ed stefnum\u00f6rkun sem sam\u00feykkt var \u00e1ri\u00f0 1988 var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 n\u00fdir samningar yr\u00f0u a\u00f0eins til 10 \u00e1ra. Samkv\u00e6mt stefnum\u00f6rkun fr\u00e1 \u00e1rinu 2004 er fyrirhuga\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0urinn neyti forkaupsr\u00e9ttar \u00feegar b\u00fasta\u00f0ir bj\u00f3\u00f0ast til s\u00f6lu og yfirtaki l\u00f3\u00f0ir \u00feegar leigusamningar renna \u00fat. \u00deeirri stefnum\u00f6rkun hefur ekki enn veri\u00f0 framfylgt. \u00cd m\u00f6rgum tilvikum eru h\u00fasin g\u00f6mul og ver\u00f0laus en l\u00f3\u00f0in og sta\u00f0setningin eru mikils vir\u00f0i. L\u00f3\u00f0in er \u00fe\u00f3 \u00ed raun eign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Vera kann a\u00f0 r\u00e9tthafar eigi b\u00f3tar\u00e9tt sem g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 mikill en ekki hefur veri\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0 reyna.<\/p>\n<p>\u00cd dag eru 94 sumarb\u00fasta\u00f0ir innan marka \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sins.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<dl id=\"attachment_241\" class=\"wp-caption alignnone\" style=\"width: 571px;\">\n<dt class=\"wp-caption-dt\"><a href=\"http:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/MG_0184.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-241\" src=\"http:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/MG_0184-1024x649.jpg\" alt=\"_MG_0184\" width=\"561\" height=\"356\" srcset=\"https:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/MG_0184-1024x649.jpg 1024w, https:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/MG_0184-300x190.jpg 300w, https:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/MG_0184-80x50.jpg 80w, https:\/\/nsve.is\/wp-content\/uploads\/2015\/07\/MG_0184.jpg 1920w\" sizes=\"auto, (max-width: 561px) 100vw, 561px\" \/><\/a><\/dt>\n<dd class=\"wp-caption-dd\"><em><strong>Fer\u00f0amenn sko\u00f0a ummerki \u00fatr\u00e1sart\u00edmans sem n\u00e1\u00f0i til \u00deingvalla me\u00f0 gl\u00f3rulausum n\u00fdbyggingum vi\u00f0 vatnsbakkann.<\/strong><\/em><\/dd>\n<\/dl>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h4><\/h4>\n<h4>Forr\u00e9ttindi og mismunun r\u00e9ttl\u00e6tt<\/h4>\n<p>Fur\u00f0uhlj\u00f3tt hefur veri\u00f0 um l\u00f3\u00f0a\u00fathlutanirnar \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum ef fr\u00e1 er talinn hvellurinn sem var\u00f0 vegna Gj\u00e1bakkam\u00e1lsins. Af \u00fev\u00ed tilefni var ger\u00f0 \u00fattekt \u00e1 sumarb\u00fast\u00f6\u00f0um \u00e1 \u00deingv\u00f6llum \u00ed t\u00edmaritinu Samvinnunni 1967 a\u00f0 frumkv\u00e6\u00f0i Sigur\u00f0ar A. Magn\u00fassonar rith\u00f6fundar sem \u00fe\u00e1 var ritstj\u00f3ri. Birtar voru myndir af flestum b\u00fast\u00f6\u00f0unum sem reistir h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 og nafngreindir eigendur a\u00f0 21 b\u00fasta\u00f0 me\u00f0 vatninu su\u00f0ur fr\u00e1 Valh\u00f6ll \u00e1samt 25 \u201eGj\u00e1bakka-g\u00e6\u00f0ingum\u201c \u00deingvallanefndar. J\u00f3nas fr\u00e1 Hriflu var spur\u00f0ur \u00ed vi\u00f0tali hva\u00f0 hef\u00f0i valdi\u00f0 sinnaskiptum hans fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann bar\u00f0ist manna har\u00f0astur fyrir fri\u00f0un \u00deingvalla. Kva\u00f0st J\u00f3nas ekki mundu hafa fallist \u00e1 a\u00f0 leyfa sumarb\u00fasta\u00f0i \u00ed Gj\u00e1bakkalandi ef hann \u00e6tti enn s\u00e6ti \u00ed \u00deingvallanefnd. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 \u201e&#8230;sj\u00f3narmi\u00f0 sitt og annarra nefndarmanna, a\u00f0 fri\u00f0a b\u00e6ri sv\u00e6\u00f0i\u00f0 austan \u00d6xar\u00e1r, en leyfa bygg\u00f0 vestan \u00e1rinnar fr\u00e1 Valh\u00f6ll og su\u00f0ur me\u00f0 \u00deingvallavatni vestanver\u00f0u. \u00c1st\u00e6\u00f0una kva\u00f0 hann fyrst og fremst hafa veri\u00f0 \u00fe\u00e1, a\u00f0 hann vildi \u201el\u00edf\u201c \u00e1 \u00deingv\u00f6llum, en gat \u00feess jafnframt a\u00f0 gott hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta \u00e1hrifamenn \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu eiga pers\u00f3nulegra hagsmuna a\u00f0 g\u00e6ta \u00e1 \u00deingv\u00f6llum, svo \u00feeir leg\u00f0ust \u00e1 eitt um a\u00f0 verja sta\u00f0inn skakkaf\u00f6llum ef \u00feurfa \u00fe\u00e6tti, t.d. \u00ed sambandi vi\u00f0 hugsanlega h\u00e6kkun \u00deingvallvatns af v\u00f6ldum Sogsvirkjunar.\u201c<\/p>\n<p>Af \u00feessum or\u00f0um J\u00f3nasar m\u00e1 r\u00e1\u00f0a a\u00f0 sumarb\u00fasta\u00f0al\u00f3\u00f0ir \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum voru ekki \u00e6tla\u00f0ar \u201ehverjum sem er\u201c heldur a\u00f0eins \u00feeim sem eitthva\u00f0 \u00e1ttu undir s\u00e9r. Og h\u00e9r var jafnframt komin fram hugmyndafr\u00e6\u00f0ileg r\u00e9ttl\u00e6ting \u00e1 \u00feeirri si\u00f0lausu og \u00f3l\u00f6gm\u00e6tu mismunun sem fest haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed sessi \u00e1 \u00deingv\u00f6llum: R\u00f3mant\u00edsk hugmynd um \u201el\u00edf\u201c \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum og \u00fea\u00f0 vi\u00f0horf a\u00f0 nokkrir \u00fatvaldir \u201ebroddborgarar\u201c hef\u00f0u s\u00e9rst\u00f6ku hlutverki a\u00f0 gegna sem verndarar \u00feessa helgista\u00f0ar \u201eallra \u00cdslendinga.\u201c<\/p>\n<h4><\/h4>\n<h4>Afst\u00e6\u00f0i frelsis e\u00f0a mismunandi t\u00e1knmyndir \u00feess<\/h4>\n<p>Fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00f3\u00f0unum var \u00fathluta\u00f0 \u00e1 \u00deingv\u00f6llum hafa sumarb\u00fasta\u00f0ir gengi\u00f0 kaupum og s\u00f6lum \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum. \u00cd \u00e6vis\u00f6gu vestfirsku heimskonunnar Sonju Zorilla er a\u00f0 finna \u00e1g\u00e6ta l\u00fdsingu \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig kaupin gerast \u00e1 eyrinni. H\u00f6r\u00f0ur Bjarnason, sem \u00fe\u00e1 var h\u00fasameistari r\u00edkisins og framkv\u00e6mdastj\u00f3ri \u00deingvallanefndar, benti Sonju \u00e1 a\u00f0 sumarb\u00fasta\u00f0ur v\u00e6ri til s\u00f6lu vi\u00f0 \u00deingvallavatn \u00e1 g\u00f3\u00f0u ver\u00f0i og haf\u00f0i s\u00ed\u00f0an millig\u00f6ngu um kaupin. Alexander J\u00f3hannesson, pr\u00f3fessor og fyrrum kostgangari hj\u00e1 gamalli fr\u00e6nku hennar, bygg\u00f0i b\u00fasta\u00f0inn undir Hallinum sk\u00f6mmu fyrir l\u00fd\u00f0veldis\u00e1ri\u00f0 1944. Seinna haf\u00f0i \u00deorsteinn Scheving Thorsteinsson lyfsali eignast hann. Sonja keypti s\u00ed\u00f0an b\u00fasta\u00f0inn af \u00e6ttingjum hans. \u00deetta var \u00e1ri\u00f0 1970. H\u00fan var hins vegar langdv\u00f6lum erlendis og nota\u00f0i b\u00fasta\u00f0inn l\u00edti\u00f0. Framkv\u00e6mdastj\u00f3ri \u00deingvallanefndar hluta\u00f0ist \u00fev\u00ed til um a\u00f0 Sonja veitti fr\u00fa Vigd\u00edsi Finnbogad\u00f3ttur fyrrverandi forseta l\u00fd\u00f0veldisins afnot af b\u00fasta\u00f0num \u00ed fjarveru hennar me\u00f0 \u00e1kve\u00f0num skilm\u00e1lum. \u00c1 \u00feeim t\u00edma \u00feekkti Sonja fr\u00fa Vigd\u00edsi einungis af afspurn en fyrsti fundur \u00feeirra marka\u00f0i upphafi\u00f0 a\u00f0 g\u00f3\u00f0ri vin\u00e1ttu. Sm\u00e1m saman var\u00f0 Sonja afhuga \u00fev\u00ed a\u00f0 dvelja \u00ed b\u00fasta\u00f0num og a\u00f0 endingu \u00e1kva\u00f0 h\u00fan a\u00f0 losa sig vi\u00f0 hann. \u00dea\u00f0 var svo Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir sem keypti b\u00fasta\u00f0inn af Sonju \u00e1ri\u00f0 1993.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leigja sumarb\u00fasta\u00f0 Sonju Zorilla og festa s\u00ed\u00f0an kaup \u00e1 honum gekk Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir inn \u00ed si\u00f0laust kerfi forr\u00e9ttinda og mismununar sem haf\u00f0i veri\u00f0 vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i innan \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sins um margra \u00e1ratuga skei\u00f0 og stu\u00f0la\u00f0i a\u00f0 vi\u00f0haldi \u00feess. \u00cd \u00e1lyktun Fer\u00f0am\u00e1lar\u00e1\u00f0s fr\u00e1 5. j\u00fal\u00ed 1966 er komist a\u00f0 kjarna m\u00e1ls en \u00fear segir a\u00f0 l\u00f3\u00f0a\u00fathlutanir \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum hafi fali\u00f0 \u00ed s\u00e9r \u201egr\u00f3ft tr\u00fana\u00f0arbrot\u201c gagnvart almenningi og \u201er\u00e1\u00f0stafanir sem hlj\u00f3ta a\u00f0 lei\u00f0a til takm\u00f6rkunar \u00e1 fer\u00f0afrelsi borgaranna um hi\u00f0 sameiginlega land \u00feeirra, enda heimildarlaust me\u00f0 \u00f6llu og \u00f3l\u00f6gm\u00e6tt a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist&#8230;.\u201c Tveimur \u00e1rum eftir kaupin \u00e1 b\u00fasta\u00f0num f\u00f3r fr\u00fa Vigd\u00eds \u00ed opinbera heims\u00f3kn til K\u00edna \u00fear sem h\u00fan \u00e1tti fund me\u00f0 Li Peng fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra k\u00ednverska Al\u00fe\u00fd\u00f0ul\u00fd\u00f0veldisins og samsinnti \u00fev\u00ed a\u00f0 frelsi\u00f0 v\u00e6ri afst\u00e6tt. \u00deegar heim var komi\u00f0 ba\u00f0st Vigd\u00eds afs\u00f6kunar \u00e1 \u00feessum umm\u00e6lum s\u00ednum og sag\u00f0i \u00feau vera mist\u00f6k. H\u00fan hef\u00f0i ef til vill frekar \u00e1tt a\u00f0 tala um \u201e\u00f3l\u00edkar t\u00e1knmyndir\u201c frelsis en afst\u00e6\u00f0i \u00feess. L\u00e1tum \u00fea\u00f0 liggja \u00e1 milli hluta a\u00f0 forsetinn fyrrverandi ruglar h\u00e9r hugt\u00f6kum; afst\u00e6\u00f0i frelsis og \u00f3l\u00edkar t\u00e1knmyndir \u00feess eru sitthva\u00f0. En me\u00f0 h\u00e1tterni s\u00ednu s\u00fdndi fr\u00fa Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir \u00ed verki a\u00f0 sumir eru jafnari en a\u00f0rir fyrir l\u00f6gunum \u2013 a\u00f0 \u00e1 \u00deingv\u00f6llum er frelsi\u00f0 afst\u00e6tt! Sumarb\u00fasta\u00f0irnir innan \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sins eru \u00e1 hinn b\u00f3ginn t\u00e1knmynd mismununar, forr\u00e9ttinda og spillingar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h4>P\u00f3lit\u00edsk si\u00f0menning og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i<\/h4>\n<p>\u00cd flestum si\u00f0menntu\u00f0um l\u00f6ndum v\u00e6ri \u00feessi arfleif\u00f0 talin hneisa og unni\u00f0 markvisst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 uppr\u00e6ta hana. En \u00e1 \u00cdslandi vekur \u00feessi saga enga s\u00e9rstaka athygli og \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 fjarl\u00e6gja b\u00fasta\u00f0ina hafa sumarh\u00fasaeigendur fest sig \u00ed sessi s\u00ed\u00f0ustu \u00e1ratugi og nj\u00f3ta sem fyrr forr\u00e9ttinda \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inum.<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur Magn\u00fasson fulltr\u00fai beitti s\u00e9r hva\u00f0 har\u00f0ast gegn sumarb\u00fast\u00f6\u00f0unum \u00e1 \u00deingv\u00f6llum \u00feegar l\u00f3\u00f0a\u00fathlutunin \u00ed Gj\u00e1bakkalandi komst \u00ed h\u00e1m\u00e6li og skrifa\u00f0i me\u00f0al annars innbl\u00e1sna grein \u00ed Samvinnuna 1967 \u00fear sem fram kemur flest \u00fea\u00f0 sem m\u00e1li skiptir \u00ed \u00feessu sambandi. Gefum honum or\u00f0i\u00f0: \u201eJafnr\u00e9tti allra borgara er ein meginsto\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isins. Fullvissa hvers einasta manns um \u00fea\u00f0 a\u00f0 allir s\u00e9u jafnir a\u00f0 l\u00f6gum er grundv\u00f6llur \u00feess a\u00f0 um eiginlegt l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i geti veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.\u201c Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir v\u00edsa\u00f0i til \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in \u00feekkti hugsj\u00f3nir s\u00ednar um mannr\u00e9ttindi, kvenfrelsi og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i \u00feegar h\u00fan reyndi a\u00f0 svara gagnr\u00fdninni sem h\u00fan s\u00e6tti vegna framg\u00f6ngu sinnar \u00ed K\u00ednaheims\u00f3kninni. En eins og Sigur\u00f0ur bendir \u00e1 eru \u201eraunverulegir l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0issinnar \u00ed h\u00f3pi forystumanna&#8230;\u00feeir einir sem skammta s\u00e9r ekki meiri hlut e\u00f0a annan en \u00feann sem \u00feeim ber a\u00f0 r\u00e9ttum l\u00f6gum, ganga sj\u00e1lfir \u00e1 undan me\u00f0 g\u00f3\u00f0u ford\u00e6mi um a\u00f0 hafa \u00ed hei\u00f0ri \u00fe\u00e6r reglur er \u00feeir setja \u00f6\u00f0rum til eftirbreytni.\u201c Og hann heldur \u00e1fram: \u201eAllir sem v\u00edkja af \u00feessum vegi eru l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0inu h\u00e1skasamlegir hversu mj\u00f6g sem \u00feeir kunna a\u00f0 lofa \u00fea\u00f0 \u00ed or\u00f0i&#8230;.\u201c En \u201ehi\u00f0 \u00edskyggilegasta af \u00f6llu \u00ed \u00feessu andstyggilega m\u00e1li\u201c a\u00f0 mati Sigur\u00f0ar er \u201esofandah\u00e1tturinn, do\u00f0inn og t\u00f3ml\u00e6ti\u00f0\u201c sem einkennt hefur vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 almennings e\u00f0a \u201e\u00fea\u00f0 sem nefna m\u00e1 almennings\u00e1lit.\u201c<\/p>\n<p>\u00deetta eru or\u00f0 a\u00f0 s\u00f6nnu: Mikil er sk\u00f6mm \u00feeirra sem hafa blyg\u00f0unarlaust \u00ed skj\u00f3li p\u00f3lit\u00edskrar samtryggingar og \u00fe\u00f6ggunar hrei\u00f0ra\u00f0 um sig \u00e1 helgasta sta\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0arinnar og nj\u00f3ta \u00fear forr\u00e9ttinda. Ekki er minni sk\u00f6mm hinna sem me\u00f0 a\u00f0ger\u00f0um s\u00ednum e\u00f0a a\u00f0ger\u00f0aleysi bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1lum er svona fyrir komi\u00f0. Sk\u00f6mmin er \u00fe\u00f3 fyrst og s\u00ed\u00f0ast okkar \u2013 almennings \u00ed landinu \u2013 sem l\u00e1tum \u00feessa sv\u00edvir\u00f0u yfir okkur ganga m\u00f6glunarlaust \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafast a\u00f0 e\u00f0a f\u00e1 r\u00f6nd vi\u00f0 reist.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><em>H\u00f6fundur er lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur \u00ed hestafer\u00f0um \u00e1 Hengils- og \u00deingvallasv\u00e6\u00f0inu<br \/>\nog varama\u00f0ur \u00ed stj\u00f3rn N\u00e1tt\u00faruverndarsamtaka Su\u00f0vesturlands<\/em>.<\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur birt \u00ed Fr\u00e9ttat\u00edmanum 17. ma\u00ed 2013.<\/p>\n<p><strong><a href=\"http:\/\/nsve.is\/?p=280\"><em>Engilsh version<\/em><\/a><\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>-eftir Stef\u00e1n Erlendsson. Eitthvert \u00e1\u00fereifanlegasta d\u00e6mi\u00f0 um \u00fea\u00f0 si\u00f0leysi og spillingu sem um langan aldur hefur vi\u00f0gengist \u00ed \u00edslenskum stj\u00f3rnm\u00e1lum er me\u00f0fer\u00f0 Al\u00feingis \u00e1 helgasta s\u00f6gusta\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, \u00deingv\u00f6llum. S\u00fa r\u00e1\u00f0st\u00f6fun \u00deingvallanefndar a\u00f0 veita \u00fatv\u00f6ldum vinum nefndarmanna, tengdam\u00f6nnum \u00feeirra og \u00f6\u00f0rum &hellip; <a href=\"https:\/\/nsve.is\/?p=236\">Continued<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":241,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[20],"tags":[],"class_list":["post-236","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-thingvellir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/236","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=236"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/236\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":282,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/236\/revisions\/282"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/241"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=236"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=236"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=236"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}