{"id":626,"date":"2025-03-01T20:54:14","date_gmt":"2025-03-01T20:54:14","guid":{"rendered":"https:\/\/nsve.is\/?p=626"},"modified":"2025-03-01T20:54:16","modified_gmt":"2025-03-01T20:54:16","slug":"reykjanesthjodgardur-i-stad-folkvanga-greinargerd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/nsve.is\/?p=626","title":{"rendered":"Reykjanes\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur, \u00ed sta\u00f0 f\u00f3lkvanga \u2013 Greinarger\u00f0"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"has-medium-font-size wp-block-paragraph\"><strong>Tilur\u00f0 tveggja f\u00f3lkvanga fyrir h\u00e1lfri \u00f6ld<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lkvangur er fri\u00f0land \u00ed umsj\u00f3n sveitarf\u00e9laga (skv. 52. og 83. Gr. N\u00e1tt\u00faruverndarlaga), en \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur er \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 r\u00edkisins (47. og 82. gr. s\u00f6mu laga). Hugmynd um stofnun f\u00f3lkvangs \u00e1 Reykjanesskaga var sam\u00feykkt samhlj\u00f3\u00f0a \u00ed borgarstj\u00f3rn Reykjav\u00edkur \u00e1ri\u00f0 1969. Leita\u00f0 var eftir samstarfi vi\u00f0 15 sveitarf\u00e9l\u00f6g um a\u00f0 fri\u00f0l\u00fdsa land \u00e1 Reykjanesskaga til \u00fativistar og almenningsnota.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\n<strong>Upphaflega var \u00e6tlunin a\u00f0 stofna einn \u00fativistarf\u00f3lkvang\nh\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0isins, en \u00fea\u00f0 gekk grei\u00f0ar a\u00f0 fr\u00e1 leyfi fyrir\nlandi Bl\u00e1fjallaf\u00f3lkvangs og var hann stofna\u00f0ur me\u00f0 augl\u00fdsingu \u00ed\nStj\u00f3rnart\u00ed\u00f0indum strax \u00e1ri\u00f0 1973.<\/strong> \u00dear var fri\u00f0l\u00fdst <strong>90\nkm<\/strong><sup><strong>2<\/strong><\/sup> sv\u00e6\u00f0i me\u00f0 fj\u00f6lbreyttar jar\u00f0myndanir og\nvar\u00f0 a\u00f0al sk\u00ed\u00f0asv\u00e6\u00f0i h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0isins til innan hans.\nMe\u00f0 stj\u00f3rn f\u00f3lkvangsins f\u00f3r Bl\u00e1fjallanefnd, skipu\u00f0 fulltr\u00faum\n10 sveitaf\u00e9laga;  Reykjav\u00edk, Gar\u00f0ab\u00e6r, K\u00f3pavogur, Seltjarnarnes,\nHafnarfjar\u00f0arb\u00e6r, Reykjanesb\u00e6r, Grindav\u00edk, Sveitarf\u00e9lagi\u00f0 Vogar\nSu\u00f0urnesjab\u00e6r og Mosfellsb\u00e6r. Bl\u00e1fjallanefndin fjallar n\u00e6r\neing\u00f6ngu um sk\u00ed\u00f0asv\u00e6\u00f0i\u00f0, enda mikill rekstur \u00fear, og einnig\nnokku\u00f0 um \u00der\u00edhn\u00fakag\u00edg. \u00d6nnur sv\u00e6\u00f0i f\u00f3lkvangsins eru \u00ed raun\nmuna\u00f0arlaus.  <a href=\"https:\/\/ust.is\/nattura\/natturuverndarsvaedi\/fridlyst-svaedi\/sudvesturland\/blafjallafolkvangur\/\"><strong>H\u00e9r<\/strong><\/a>\n\u00e1 vef Umhverfisstofnunar er stutt og \u00farelt l\u00fdsing \u00e1\nBl\u00e1fjallaf\u00f3lkvangi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/www.ust.is\/library\/Skrar\/Einstaklingar\/Fridlyst-svaedi\/Auglysingar\/reykjanesfolkvangur_520_1975.pdf\"><strong>Augl\u00fdsing<\/strong><\/a>\n<strong>um fri\u00f0l\u00fdsingu Reykjanesf\u00f3lkvangs birtist svo \u00ed\nStj\u00f3rnart\u00ed\u00f0indum 1975.<\/strong> \u00dear er l\u00fdst m\u00f6rkum f\u00f3lkvangsins,\nsem er um <strong>300 km<\/strong><sup><strong>2 <\/strong><\/sup><strong>. <\/strong> Teki\u00f0 er fram\na\u00f0 gangandi f\u00f3lki er heimil f\u00f6r um f\u00f3lkvanginn nema innan\ngir\u00f0inga um vatnsb\u00f3l og r\u00e6kta\u00f0 land. Jar\u00f0rask er banna\u00f0 nema\nme\u00f0 leyfi Umhverfisstofnunar en undanskilin <strong>hagn\u00fdting jar\u00f0hita,<\/strong>\nt.d. \u00ed Kr\u00fdsuv\u00edk, og mannvirkjager\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed sambandi. R\u00e9ttur til\nb\u00farekstrar og til beitar er ekki skertur, n\u00e9 heldur r\u00e9ttur \u00ed\nKr\u00fdsuv\u00edk til starfsemi \u00ed almanna\u00fe\u00e1gu (Kr\u00fdsuv\u00edkursk\u00f3li).\nN\u00e1murekstur, sem var innan f\u00f3lkvangsins \u00feegar augl\u00fdsingin var\nbirt, m\u00e1 haldast. \u00d6ll sveitarf\u00e9l\u00f6gin gera \u00feann fyrirvara a\u00f0\nstofnun f\u00f3lkvangsins raski ekki \u00e1 neinn h\u00e1tt eignarr\u00e9tti lands.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd\naugl\u00fdsingunni er teki\u00f0 fram a\u00f0 samvinnunefnd \u00e1tta\nsveitarf\u00e9laganna fari me\u00f0 stj\u00f3rn f\u00f3lkvangsins, skipu\u00f0 einum\nfullr\u00faa fr\u00e1 hverju \u00feeirra. A\u00f0 Reykjanesf\u00f3lkvangi standa 8\nsveitarf\u00e9l\u00f6g, \u00feau s\u00f6mu og a\u00f0 Bl\u00e1fjallaf\u00f3lkvangi, nema ekki\nMosfellsb\u00e6r og Su\u00f0urnesjab\u00e6r.  Sveitarf\u00e9l\u00f6gin leggja til\nrekstrarf\u00e9 \u00ed hlutfalli vi\u00f0 \u00edb\u00faafj\u00f6lda og hefur \u00fea\u00f0 duga\u00f0\nfyrir landv\u00f6rslu yfir sumari\u00f0. Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur hefur a\u00f0 auki\nkosta\u00f0 d\u00e1litlu til innvi\u00f0a \u00ed Selt\u00fani.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0\nfrumkv\u00e6\u00f0i Reykjav\u00edkurborgar ur\u00f0u \u00feannig til tveir samliggjandi\nf\u00f3lkvangar,<\/strong> a\u00f0 mestu undir stj\u00f3rn s\u00f6mu sveitarf\u00e9laga. \nReykjav\u00edk hefur veri\u00f0 \u00ed forystu f\u00f3lkvanganna, \u00e1tt\nstj\u00f3rnarformenn og lagt til mest f\u00e9, enda mi\u00f0ast gj\u00f6ldin vi\u00f0\n\u00edb\u00faafj\u00f6lda. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00fan\nHelgad\u00f3ttir, n\u00e1tt\u00farufr\u00e6\u00f0ingur, skrifa\u00f0i \u00edtarlega <strong>sk\u00fdrslu\n<\/strong>um Reykjanesf\u00f3lkvang 2004 og um \u00fea\u00f0 leyti var opnu\u00f0 heimas\u00ed\u00f0a\n\u00fear sem fjalla\u00f0 var m.a. um g\u00f6ngulei\u00f0ir. \u00c1sta \u00deorleifsd\u00f3ttir,\njar\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur, skrifa\u00f0i \u00e1ri\u00f0 2008 sk\u00fdrslu um m\u00f6guleika\nfer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu \u00ed f\u00f3lkvanginum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-medium-font-size wp-block-paragraph\"><strong>Mikil\nvinna en l\u00edtill \u00e1rangur, enda vonlaust skipulag <\/strong>\n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0\n2007-8  lag\u00f0i borgarstj\u00f3rn fram aukalega 10 millj\u00f3nir til a\u00f0 meta\nfer\u00f0a\u00fej\u00f3nustum\u00f6guleika \u00ed Reykjanesf\u00f3lkvangi og var lagt til a\u00f0\nn\u00e6stu skref g\u00e6tu veri\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a m\u00f6guleika \u00e1 stofnun\n\u201eeldfjallagar\u00f0s\u201c. \u00d3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed stofnu\u00f0u sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00e1\nSu\u00f0urnesjum nokkru s\u00ed\u00f0ar <a href=\"http:\/\/www.reykjanesgeopark.is\/\">Reykjanesjar\u00f0vang<\/a>\n(geopark) sem byggir \u00e1 \u00f6\u00f0rum grunni og n\u00e6r yfir <strong>allt <\/strong>land\nsveitarf\u00e9laganna, \u00fear \u00e1 me\u00f0al u.\u00fe.b. h\u00e1lfan Reykjanesf\u00f3lkvang.\n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stj\u00f3rn\nReykjanesf\u00f3lkvangs, undir forystu Sverris Bollasonar, \u00fe\u00e1verandi\nformanns, f\u00e9kk hins vegar til li\u00f0s vi\u00f0 s\u00e9rfr\u00f3tt f\u00f3lk fr\u00e1\nVSO-r\u00e1\u00f0gj\u00f6f (fyrir fyrrnefnda aukafj\u00e1rveitingu) til a\u00f0 vinna\n\u00edtarlega <strong>stj\u00f3rnunar\u00e1\u00e6tlun<\/strong> fyrir f\u00f3lkvanginn og nota\u00f0i\ntil \u00feess aukafj\u00e1rveitinguna. Var s\u00fa \u00e1\u00e6tlun a\u00f0 mestu tilb\u00fain\n2012 og eftir opinn fund og umsagnarferli var h\u00fan tilb\u00fain 2014.\nMiklu var safna\u00f0 af g\u00f6gnum, stj\u00f3rnunin skilgreind og ger\u00f0ar\nmerkar till\u00f6gur og <strong>8 \u00feemakort<\/strong>. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6ll\n\u00feessi g\u00f6gn voru afhent Umhverfisstofnun me\u00f0 tilm\u00e6lum um a\u00f0 gera\n\u00e1 grunni \u00feeirra <strong>verndar\u00e1\u00e6tlun<\/strong>, l\u00edkt og fyrir \u00f6nnur\nfri\u00f0l\u00fdst sv\u00e6\u00f0i<strong>.<\/strong> Umhverfisstofnun t\u00f3k vel \u00ed \u00fea\u00f0 en\nekkert var\u00f0 af framkv\u00e6mdum. \u00deessi vanda\u00f0a stj\u00f3rnunar\u00e1\u00e6tlun\nhefur \u00fev\u00ed ekkert formlegt gildi. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sverrir\nBollason ger\u00f0i jafnframt <strong>vanda\u00f0a heimas\u00ed\u00f0u,<\/strong>\nreykjanesfolkvangur.is, m.a. me\u00f0 fyrrnefndum kortum, en s\u00fa s\u00ed\u00f0a\nfinnst ekki lengur \u00e1 netinu. L\u00edklega er sk\u00e1sta l\u00fdsing\nReykjanesf\u00f3lkvangs \u00e1 netinu n\u00fana \u00e1 <a href=\"https:\/\/ferlir.is\/reykjanesfolkvangur-yfirlit\/\">ferlir.is<\/a>.\n \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sverrir\nkanna\u00f0i einnig m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 <strong>sameina Bl\u00e1fjallaf\u00f3lkvang\nReykjanesf\u00f3lkvangi,<\/strong> a\u00f0 undanskildu sk\u00ed\u00f0asv\u00e6\u00f0inu og\ntilheyrandi mannvirkjum. R\u00f6kin voru \u00feau a\u00f0 f\u00f3lkvangarnir liggja\nsaman; a\u00f0 mestu undir stj\u00f3rn s\u00f6mu sveitarf\u00e9laga; og megni\u00f0 af\nlandi Bl\u00e1fjallaf\u00f3lkvangs er afskipt, \u00fev\u00ed Bl\u00e1fjallanefnd fjallar\neing\u00f6ngu um sk\u00ed\u00f0asv\u00e6\u00f0i\u00f0. \u00deegar f\u00f3lkvangsnefndirnar tv\u00e6r voru\nendurn\u00fdja\u00f0ar eftir sveitarstj\u00f3rnarkosningarnar 2014 var \u00feeim\ntilm\u00e6lum beint til sveitarf\u00e9laganna a\u00f0 skipa sama fulltr\u00faa \u00ed\nb\u00e1\u00f0ar nefndirnar til a\u00f0 grei\u00f0a fyrir sameiningu f\u00f3lkvanganna.\nEinnig var r\u00e6tt um a\u00f0 innlima \u00ed hinn sameina\u00f0a f\u00f3lkvang\na\u00f0liggjandi r\u00edkisj\u00f6r\u00f0, <strong>Herd\u00edsarv\u00edk, <\/strong>sem er gr\u00ed\u00f0arst\u00f3r,\n42 km<sup>2<\/sup> og var <a href=\"https:\/\/www.ust.is\/library\/Skrar\/Einstaklingar\/Fridlyst-svaedi\/Auglysingar\/herdisarvik_121_1988.pdf\">fri\u00f0l\u00fdst\n1988<\/a>. Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i \u00d6lfus b\u00e6st vi\u00f0 \u00ed\nh\u00f3p umsj\u00f3narsveitarf\u00e9laga. <strong>M\u00e1li\u00f0 stranda\u00f0i<\/strong> og enn er\nallt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sama. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deess\nm\u00e1 geta a\u00f0 austan Herd\u00edsarv\u00edkur liggur sv\u00e6\u00f0i \u00e1\nn\u00e1tt\u00faruminjaskr\u00e1, <strong>Stakkav\u00edk <\/strong>og <strong>Hl\u00ed\u00f0arvatn <\/strong>\u00ed\nSelvogi. R\u00e6tt hefur veri\u00f0 um a\u00f0 b\u00e6ta einnig vestan vi\u00f0\nf\u00f3lkvanginn H\u00f6skuldarv\u00f6llum og Keili, sv\u00e6\u00f0i \u00e1 n\u00e1tt\u00faruminjaskr\u00e1\ninnan Sveitarf\u00e9lagsins Voga, \u00ed einkaeign. \u00de\u00e1 yr\u00f0i Keilir\n\u00fatv\u00f6r\u00f0ur f\u00f3lkvangsins \u00ed vestri, me\u00f0 svipu\u00f0um h\u00e6tti og\nHelgafell \u00ed nor\u00f0ri og Arnarfell \u00ed Su\u00f0ri. Ef allt \u00feetta gengi\neftir v\u00e6ri st\u00e6r\u00f0 n\u00fds f\u00f3lkvangs <strong>vel \u00e1 fimmta hundra\u00f0\nferk\u00edl\u00f3metrar.<\/strong>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0\n2014 vildi b\u00e6jarstj\u00f3rn Grindav\u00edkur <strong>sl\u00edta f\u00f3lkvanginum<\/strong> \u00fear\nsem Grindav\u00edk hef\u00f0i ekki fullt forr\u00e6\u00f0i yfir landinu innan marka\nsveitarf\u00e9lagsins \u2013 en ekki var\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0<strong>\n2016 <\/strong>kom upp s\u00fa hugmynd, a\u00f0 frumkv\u00e6\u00f0i fulltr\u00faa Reykjav\u00edkur,\na\u00f0 <strong>Grindav\u00edk og Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur t\u00e6kju a\u00f0 s\u00e9r formennsku <\/strong>og\na\u00f0 flytja skrifstofua\u00f0st\u00f6\u00f0u f\u00f3lkvangsins til Grindav\u00edkur. R\u00f6kin\nvoru \u00feau a\u00f0 megni\u00f0 af landi f\u00f3lkvangsins v\u00e6ri \u00ed \u00feessum\nsveitarf\u00e9l\u00f6gum. B\u00e6jarr\u00e1\u00f0 Grindav\u00edkur t\u00f3k j\u00e1kv\u00e6tt \u00ed \u00fea\u00f0\n26. ma\u00ed \u00fea\u00f0 \u00e1r. En svo ur\u00f0u b\u00e6jarstj\u00f3raskipti \u00ed Grindav\u00edk og\nb\u00e6jarstj\u00f3rnarkosningar og m\u00e1li\u00f0 \u00fear me\u00f0 dautt. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Reykjav\u00edk\nhefur \u00feannig allan t\u00edmann veri\u00f0 \u00ed forystuhlutverki, \u00fe\u00f3 borginni\ntilheyri ekkert land \u00ed f\u00f3lkvanginum, en stofna\u00f0 var til\nf\u00f3lkvangsins til a\u00f0 tryggja h\u00f6fu\u00f0borginni og\nn\u00e1grannasveitarf\u00e9l\u00f6gum \u00fativistarland.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ustu\n\u00e1r hefur komi\u00f0 fram vilji \u00ed Borgarstj\u00f3rn og \u00ed fleiri\nsveitarf\u00e9l\u00f6gum a\u00f0 <strong>draga sig \u00fat \u00far f\u00f3lkvanginum.<\/strong> \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>N\u00fa\nstefnir \u00ed a\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin sem eiga land f\u00f3lkvangsins,\nGrindav\u00edk, Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur og Gar\u00f0ab\u00e6r, taki a\u00f0 s\u00e9r umsj\u00f3n og\nstj\u00f3rn Reykjanesf\u00f3lkvangs og a\u00f0 Umhverfisstofnun komi meira inn \u00ed\nm\u00e1li\u00f0. Enn ein s\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 f\u00f3lkvangsformi\u00f0 virkar ekki  \u2013\nog kn\u00fdjandi \u00fe\u00f6rf er \u00e1 breytingu!<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-medium-font-size wp-block-paragraph\"><strong>Styrkleikar\nog veikleikar<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd\nReykjanesf\u00f3lkvangi er <strong>afar fj\u00f6lbreytt n\u00e1tt\u00farufar, <\/strong>ekki\ns\u00edst marv\u00edsleg auglj\u00f3s ummerki um eldvirkni.<strong> A\u00f0s\u00f3kn<\/strong> eykst\nst\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 vins\u00e6lum st\u00f6\u00f0um, \u00ed takti vi\u00f0 st\u00f3raukna\nfer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu. <strong>Styrkur f\u00f3lkvangsins er a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1\nfj\u00f6lbreytta \u00f6r\u00e6faupplifun n\u00e1l\u00e6gt mesta \u00fe\u00e9ttb\u00fdli landsins og\nflugvellinum.<\/strong> <strong>\u00dea\u00f0 sparast peningar, t\u00edmi, orka og \u00fatbl\u00e1stur<\/strong>\nog minnkar kolefnisspor vi\u00f0 a\u00f0 fer\u00f0ast svo stutt en upplifa samt\n\u00fea\u00f0 sama og \u00ed mun lengri fer\u00f0um. \u00deessi \u00fer\u00f3un kallar \u00e1 <strong>\u00f6fluga\nlandv\u00f6rslu og \u00fej\u00f3nustu allt \u00e1ri\u00f0, \u00f6fluga innvi\u00f0i og ums\u00fdslu <\/strong>\u2013\n<strong>og \u00fear me\u00f0 auki\u00f0 fj\u00e1rmagn.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>N\u00faverandi\nfyrirkomulag <\/strong>hefur \u00feannig s\u00fdnt sig a\u00f0 vera <strong>mj\u00f6g veik\nstj\u00f3rns\u00fdsla<\/strong>. F\u00f3lkvangur er sv\u00e6\u00f0i fri\u00f0l\u00fdst til \u00fativistar,\n\u00ed umsj\u00f3n sveitarf\u00e9lags og hentar vel fyrir eitt e\u00f0a f\u00e1\nsveitarf\u00e9l\u00f6g, en s\u00ed\u00f0ur \u00feegar svo m\u00f6rg eiga \u00ed hlut. Eins er\nhlutverk og skipting \u00e1byrg\u00f0ar Umhverfisstofnunar og\nf\u00f3lkvangsstj\u00f3rnar \u00f3lj\u00f3s. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tilraunir\ntil a\u00f0 breyta e\u00f0a \u00fer\u00f3a grundv\u00f6ll f\u00f3lkvangsins hafa runni\u00f0 \u00fat\n\u00ed sandinn, nema a\u00f0 Sveitarf\u00e9lagi\u00f0 Vogar f\u00e9kk a\u00f0ild 2011.\nMetna\u00f0arfull <strong>stj\u00f3rnunar\u00e1\u00e6tlun<\/strong> hefur ekki \u00f6\u00f0last gildi.\n\u00dear t\u00f3k enginn af skari\u00f0. Enn er <strong>engin formleg verndar\u00e1\u00e6tlun<\/strong>,\ns\u00fa framkv\u00e6md hefur stranda\u00f0 \u00e1 Umhverfisstofnun. \u00c1 vef\numhverfisstofnunar er a\u00f0eins <a href=\"https:\/\/www.ust.is\/nattura\/natturuverndarsvaedi\/fridlyst-svaedi\/sudvesturland\/reykjanesfolkvangur\/\">\u00feetta<\/a>\num Reykjanesf\u00f3lkvang. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eini\nformlegi grundv\u00f6llur f\u00f3lkvangsins er <a href=\"https:\/\/www.ust.is\/library\/Skrar\/Einstaklingar\/Fridlyst-svaedi\/Auglysingar\/reykjanesfolkvangur_520_1975.pdf\"><strong>augl\u00fdsing<\/strong>\n\u00ed stj\u00f3rnart\u00ed\u00f0indum fr\u00e1 1975<\/a>. \n<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0\nhefur veri\u00f0 l\u00e1n \u00ed \u00f3l\u00e1ni a\u00f0 stj\u00f3rnarforma\u00f0ur er alltaf fr\u00e1\nsama sveitarf\u00e9laginu, \u00fev\u00ed sem leggur fram mest f\u00e9, og sami\nstarfsma\u00f0ur Reykjav\u00edkurborgar, \u00de\u00f3r\u00f3lfur J\u00f3nsson, hefur s\u00e9\u00f0 um\nfj\u00e1rm\u00e1l og fundarger\u00f0ir samfellt fr\u00e1 2003. \u00dea\u00f0 hefur l\u00edka\nveri\u00f0 happ a\u00f0 hafa lengi haft landv\u00f6r\u00f0 sem gj\u00f6r\u00feekkir sv\u00e6\u00f0i\u00f0.\n\u00deannig hefur, n\u00e1nast fyrir tilviljun, myndast nau\u00f0synleg samfella\n\u00ed starfinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-medium-font-size wp-block-paragraph\"><strong>\u00dej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur,\nfrekar en f\u00f3lkvangur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lj\u00f3st\ner a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sform l\u00edkt og \u00ed Vatnaj\u00f6kuls\u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0i og\nSn\u00e6fellsj\u00f6kli hentar h\u00e9r mun betur en f\u00f3lkvangur \u00ed umsj\u00f3n\nmargra sveitarf\u00e9laga.<\/strong> R\u00edki\u00f0 ber \u00fear \u00e1byrg\u00f0ina, en\nsveitarf\u00e9l\u00f6g og fleiri \u00ed heimah\u00e9ra\u00f0i hafa r\u00edka, vel skilgreinda\na\u00f0komu a\u00f0 stj\u00f3rnuninni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00c1vinningur<\/strong>\nyr\u00f0i umtalsver\u00f0ur, helst \u00feessi:<\/p>\n\n\n\n<ul class=\"wp-block-list\"><li>\n\t<strong>\u00d6flugri stj\u00f3rns\u00fdsla, umsj\u00f3n og landvarsla<\/strong>, og betri\n\ttengsl vi\u00f0 stj\u00f3rnun annarra \u00fej\u00f3gar\u00f0a og fri\u00f0landa \u00ed landinu.<\/li><li>\n\tHlutverk r\u00edkis og sveitarf\u00e9laga \u00ed stj\u00f3rnun og umsj\u00f3n yr\u00f0u\n\tsk\u00fdr. \u00cd sta\u00f0 Reykjav\u00edkurborgar f\u00e6ri Umhverfisstofnun (e\u00f0a\n\t\u00dej\u00f3\u00f0gar\u00f0astofnun) me\u00f0 forystu \u00ed stj\u00f3rn.<\/li><li>\n\t<strong>T\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 sameina og samn\u00fdta samliggjandi fri\u00f0l\u00fdst\n\tsv\u00e6\u00f0i me\u00f0 \u00f3tal n\u00e1tt\u00faruperlum<\/strong>, eins og st\u00f3\u00f0 til \u00ed\n\tupphafi<strong>.<\/strong> \u00dear n\u00e6\u00f0ist verulegt st\u00e6r\u00f0arhagr\u00e6\u00f0i.<\/li><li>\n\t<strong>\u00dej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur \u00e1 Reykjanesskaga,<\/strong> mynda\u00f0ur \u00far\n\tReykjanesf\u00f3lkvangi, meirihluta Bl\u00e1fjallaf\u00f3lkvangs og\n\tHerd\u00edsarv\u00edkurj\u00f6r\u00f0inni yr\u00f0i <strong>n\u00e6st st\u00e6rsti \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur\n\tlandsins<\/strong>, vel \u00e1 fimmta hundra\u00f0 km<sup>2<\/sup>, mun st\u00e6rri en\n\t\u00dej\u00f3\u00f0gar\u00f0urinn Sn\u00e6fellsj\u00f6kull, sem er 170 km\u00b2, opinn allt \u00e1ri\u00f0\n\tme\u00f0 \u00f6flugri forystu, landv\u00f6rslu og gestastofu. \n\t<\/li><li>\n\t\u00dej\u00f3\u00f0gar\u00f0urinn myndi skarast vi\u00f0 <strong>Reykjanes Geopark<\/strong>, sem\n\tn\u00e6r yfir allt land Su\u00f0urnesjab\u00e6jar, Reykjanesb\u00e6jar, Grindav\u00edkur\n\tog Voga. \u00dearna eru miklir samleg\u00f0arm\u00f6guleikar, t.d. \u00ed landv\u00f6rslu\n\tog gestastofum. Stj\u00f3rnir \u00feessara stofnana m\u00e6tti tengja, t.d. me\u00f0\n\t\u00fev\u00ed a\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin, sem a\u00f0ild eiga a\u00f0 b\u00e1\u00f0um, myndu\n\ttilnefna sama fulltr\u00faann \u00ed stj\u00f3rn beggja, e\u00f0a a\u00f0 Geopark fengi\n\tmann \u00ed stj\u00f3rn \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0sins. <strong>\u00dear m\u00e6tti n\u00fdta g\u00f3\u00f0a\n\treynslu af samstarfi \u00dej\u00f3\u00f0gar\u00f0s og Sv\u00e6\u00f0isgar\u00f0s \u00e1\n\tSn\u00e6fellsnesi.<\/strong><\/li><li>\n\tEf fylgt ver\u00f0ur ford\u00e6mi fr\u00e1 fyrrnefndum \u00fej\u00f3\u00f0g\u00f6r\u00f0um myndu\n\t<strong>sveitarf\u00e9l\u00f6gin skipa fulltr\u00faa \u00ed stj\u00f3rn hins n\u00fdja \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0s\n\tog hafa \u00fear \u00e1hrif og v\u00f6ld. <\/strong>\u00dea\u00f0 yr\u00f0i tryggt \u00ed regluger\u00f0\n\tum \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0inn. \u00dear v\u00e6ri kve\u00f0i\u00f0 \u00e1 um hlutverk og skyldur\n\thvers a\u00f0ila, m.a. fj\u00e1rm\u00f6gnun.<\/li><\/ul>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Unni\u00f0 \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 \u00f3tal a\u00f0ila \u00e1 m\u00f6rgum \u00e1rum, loki\u00f0 \u00ed j\u00fan\u00ed 2024.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong><em>\u00deorvaldur \u00d6rn \u00c1rnason<\/em><\/strong><br>l\u00edffr\u00e6\u00f0ingur og kennari \u00e1 eftirlaunum, var lengi fulltr\u00fai Sveitarf\u00e9lagsins Voga \u00ed samvinnunefnd (stj\u00f3rn) Reykjanesf\u00f3lkvangs. <a href=\"m&#97;&#x69;&#x6c;to&#58;&#x76;&#x61;l&#100;&#x75;&#x72;or&#110;&#x40;&#x73;i&#109;&#x6e;&#x65;t.&#105;&#x73;\">v&#97;&#x6c;&#x64;&#x75;r&#111;&#x72;&#x6e;&#x40;s&#105;&#x6d;&#x6e;&#x65;t&#46;&#x69;&#x73;<\/a> <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Tilur\u00f0 tveggja f\u00f3lkvanga fyrir h\u00e1lfri \u00f6ld F\u00f3lkvangur er fri\u00f0land \u00ed umsj\u00f3n sveitarf\u00e9laga (skv. 52. og 83. Gr. N\u00e1tt\u00faruverndarlaga), en \u00fej\u00f3\u00f0gar\u00f0ur er \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 r\u00edkisins (47. og 82. gr. s\u00f6mu laga). Hugmynd um stofnun f\u00f3lkvangs \u00e1 Reykjanesskaga var sam\u00feykkt samhlj\u00f3\u00f0a \u00ed &hellip; <a href=\"https:\/\/nsve.is\/?p=626\">Continued<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[3],"tags":[],"class_list":["post-626","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/626","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=626"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/626\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":627,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/626\/revisions\/627"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=626"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=626"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/nsve.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=626"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}