Fyrsti
stjórnarfundur 13. stjórnar NSVE var haldinn 30.10. 2024 að
heimili Helenu Mjallar Jóhannsdóttur að Austurgötu 29b,
Hafnarfirði. Fundurinn hófst klukkan 17:30 og að vanda voru
rausnarlegar veitingar í boði húsráðanda.
Mættir voru stjórnarmeðlimirnir Davíð Arnar Stefánsson, Eydís Franzdóttir, Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Reynir Ingibjartsson og Stefán Erlendsson.
Eftirfarandi mál voru á dagskrá fundarins:
1. Stjórn NSVE skiptir með sér verkum
Helena Mjöll verður áfram formaður, Eydís gjaldkeri, Stefán ritari og Guðrún Ásmundsdóttir meðstjórnandi. Davíð Arnar verður varaformaður og í varastjórn verða Margrét Pétursdóttir, Reynir Ingibjartsson og Þorvaldur Örn Árnason.
2. Staða dómsmálsins gegn framkvæmdarleyfi Voga og úrskurði ÚUA vegna SN2
Eydís reifaði í stuttu máli stöðu þessa máls en úrskurður úrskurðarnefndar auðlindamála – sem komst að þeirri niðurstöðu að NSVE væri ekki aðili máls þar sem samtökin ættu ekki lögvarinna hagsmuna að gæta – var kærður og stefnt fyrir héraðsdóm. Landvernd vildi ekki vera með í málssókn Samtakanna og Hraunavina. Landeigendur á Vatnsleysuströnd stefndu sér aftur á móti inn í málið og svo gæti farið að stefnu Samtakanna yrði vísað frá og þá stæðu landeigendur einir eftir. Dómari hyggst að sögn afla sér upplýsinga um aðkomu náttúruverndarsamtaka í svona og sambærilegum málum m.a. með hliðsjón af Árósasamningnum. Málflutningur fyrir héraðsdómi verður 2. desember næstkomandi.
3. Carbfix málið
Helena greindi frá því að hún hefði farið á fund með nokkrum starfsmönnum Skipulagsstofnunar út af Carbfix-málinu. Þarna voru einnig fulltrúar frá íbúasamtökum fólks á Völlunum í Hafnarfirði. Fundurinn snerist að mestu um áhyggjur íbúa í hverfinu vegna fyrirhugaðrar niðurdælingar fyrirtækisins á koltvísýringi í bakgarði þeirra. Fulltrúar Skipulagsstofnunar, sem virtust lítið þekkja til málsins, tóku vel á móti gestum sínum og spurðu margs. Var fundurinn bæði upplýsandi og gagnlegur.
4. Starfið framundan
Ákveðið var að blása til gönguferðar um næsta nágrenni Vallahverfisins í Hafnarfirði laugardaginn 16. nóvember kl. 11-14 með staðkunnugum leiðsögumanni og kanna þar staðhætti og náttúrufar. Lagt verður upp frá bílastæðinu við Álverið í Straumsvík. Fyrirhugað er að auglýsa gönguna með vísun í söguna um Hrein Friðfinnsson myndlistarmann sem byggði sér hús í skjólsælli hraunhvilft á þessu svæði og kallaði Slunkaríki. Ef veður reynist óhagstætt til útivistar þennan dag verður göngunni frestað eða hún slegin af.
5. Önnur mál
Enn og aftur var rætt um mikilvægi sýnileikans – að NSVE væri sýnilegra á vettvangi þjóðmálanna. Í þessu sambandi skiptir kannski mestu að nota fb-síðu Samtakanna miklu meira en gert hefur verið og deila efni sem sett er þar inn sem víðast. Fjölga þarf málefnalegum og upplýsandi stöðuppfærslum um þau málefni sem koma til kasta stjórnarinnar. Eins þarf að nota heimasíðu Samtakanna meira en gert hefur verið um allnokkurt skeið. Ellert Grétarsson, sem sat í stjórn NSVE í mörg ár, átti veg og vanda að hönnun og uppsetningu síðunnar og er jafnframt höfundur að margvíslegu efni sem þar er að finna. Hann skildi eftir sig stórt skarð þegar hann hvarf úr stjórninni en hefur verið okkur innanhandar við að setja efni inn á síðuna og fleira.
Ályktun stjórnar – Hálft ár er liðið frá því að stjórnin ályktaði um Carbfix-málið og þótti ástæða til að álykta um það aftur í ljósi þess sem gerst hefur í millitíðinni:
„NSVE mótmælir fyrirhugaðri Coda Terminal kolefnisförgunarstöð Carbfix í Hafnarfirði.
Umhverfismat framkvæmdar þarf að vera heildrænt þar sem allar tengdar framkvæmdir eru metnar í einu lagi, þ.e. hafnarframkvæmdir, vegagerð og námuvinnsla.
Jafnframt telur NSVE umhverfismatsskýrslu Coda Terminal vera meingallaða og ekki standast skilyrði. Hún veki upp fleiri spurningar en hún svari varðandi áhrif framkvæmda og starfsemi Coda Terminal. Einkum sé óásættanlegt að áhrifaþættir séu metnir eftir því sem starfseminni vindur fram.
NSVE er andsnúið hugmyndum um innflutning á CO2 og telur fórnarkostnað vegna innflutnings og niðurdælingar í svo stórum stíl allt of mikinn. Förgun skal fara fram sem næst uppruna mengunar í samræmi við meginmarkmið umhverfisréttar.
Áætluð starfsemi Coda Terminal í svo mikilli nálægð við íbúðarbyggð er áhættusöm tilraunastarfsemi og skerðir stórlega lífsgæði íbúa í Vallarhverfi og Hvaleyrarholti. Staðsetningin er óásættanleg.
Allt of mörgum spurningum er ósvarað varðandi starfsemina m.a. hvað vatnsupptöku og niðurdælingar áhrærir. Þ.m.t. um mögulega jarðskjálfta, áhrif á grunnvatn, niðurfall eða hækkun vatnsborðs, og lífríki stöðuvatna og tjarna.
Óvíst er hvort neysluvatn, hitaveituvatn eða rafmagn til starfseminnar sé fáanlegt án nýtingar nýrra svæða s.s. Krýsuvíkursvæðisins. NSVE telur starfsemi Coda Terminal/Carbfix enn vera á tilraunastigi og því sé óráð að taka þvílíkt risastökk, og ekki tímabært að sækja um leyfi fyrir starfseminni.
Þá sé samráði við íbúa ábótavant. Staðsetning og umfang verkefnisins hafi komið aftan að íbúum í bænum og sveitarfélagið brugðist skyldu sinni við einhliða kynningu þess.
NSVE styður íbúakosningu um skipulagsbreytingar og starfsemi Coda Terminal í Hafnarfirði.”
Fundi slitið kl. 19:15
Stefán Erlendsson/ritari