Stjórnarfundur, 15. janúar 2025

posted in: Fundargerðir 2025 | 0

Annar stjórnarfundur 13. stjórnar NSVE var haldinn 15.01. 2025 að heimili Helenu Mjallar Jóhannsdóttur að Austurgötu 29b, Hafnarfirði. Fundurinn hófst klukkan 16:00 og venju samkvæmt bauð húsráðandi upp á girnilegar veitingar.

Mættir voru stjórnarmeðlimirnir Davíð Arnar Stefánsson, Eydís Franzdóttir, Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Þorvaldur Örn Árnason og Stefán Erlendsson.

Eftirfarandi mál voru á dagskrá fundarins:

1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar frá 30. október 2024

Ritari las fundargerðina upp sem var samþykkt samhljóða.

2. Orkuvinnsla í Krýsuvík

Orkuvinnsla í Krýsuvík er hafin nánast í skjóli nætur flestum að óvörum. Orkuvinnsla þar mun hafa í för með sér óafturkræf umhverfis- og náttúruspjöll og eyðileggingin er þegar hafin.

Umræður á íbúafundi um Krýsuvík sem haldinn var í Bæjarbíói í júní 2024 bendir til þess að íbúar í Hafnarfirði séu almennt mótfallnir framkvæmdum og náttúruraski á svæðinu. Fyrirhugað er að bora 20 holur á 7 teigum ef orkan þar verður fullnýtt. Engar upplýsingar fást um það hvað HS Orka borgaði fyrir leyfið til orkuvinnslu í Krýsuvík samkvæmt samningi sem gerður var við fyrirtækið.

Efla verkfræðistofa hefur unnið vandað mat á kostum og göllum þess að virkja jarðvarmaorkuna í Krýsuvík. Ljóst er að hér er um stórt hagsmunamál að ræða fyrir ferðaþjónustuna.

Stjórnarfundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun um orkuvinnslu í Krýsuvík:

„Stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands harmar það að tilraunaboranir skuli vera hafnar í Krýsuvík, sem er ein helsta náttúruperla Reykjaness, án þess að virkjunaráform og framkvæmdir á svæðinu hafi verið kynntar fyrir almenningi eins og vera ber. Hafnarfjarðarbær hefur gert langatímasamning við HS Orku, fyrirtæki sem er í erlendri eigu, um orkunýtingu á svæðinu. Leynd hvílir yfir innihaldi þessa samnings. Fyrirhugað er að bora 20 holur á 7 teigum. Virkjunarframkvæmdir og orkuvinnsla í Krýsuvík munu því hafa í för með sér umfangsmikil og óafturkræf náttúruspjöll.

Eyðileggingin er þegar hafin nánast í skjóli nætur og eftir því sem best verður séð í trássi við vilja meirihluta íbúa í Hafnarfirði.

Það er ótækt og þyngra en tárum taki að hlutaðeigandi stjórnvald skuli ganga fram með þeim ólýðræðislega hætti sem raun ber vitni. Við hljótum að krefjast þess að grundvallarreglur lýðræðis (um gagnsæi og aðkomu almennings) séu virtar þegar teknar eru stjórnvaldsákvarðanir um sameiginlega hagsmuni okkar og framtíð. Náttúra Íslands og umgengni um hana varðar okkur öll.“

3. Athugasemdir við frumvarp til laga um breytingu á leyfisferlum á sviði umhverfis- og orkumála sem þurfa að berast fyrir dagslok föstudaginn 17. janúar 2025

Samráðsgátt stjórnvalda er opin fyrir athugasemdir við fyrirhugaða breytingu á ýmsum lögum „vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.“

Markmiðið með þessari breytingu er að stytta leyfisveitingarferlið – t.d. með því að fækka umsagnaraðilum, nefndum og/eða stofnunum sem koma að leyfisveitingum á þessu sviði – til að flýta fyrir virkjunarframkvæmdum í ljósi meints orkuskorts í landinu og að framundan séu orkuskipti sem kalli á mikla raforkuþörf.

Rætt var um að stjórn og/eða einstakir stjórnarmeðlimir NSVE sendi inn athugasemdir í samráðsgáttina og bendi á nokkra augljósa annmarka á frumvarpinu: (i) Breyting á náttúruverndarlögum á að greiða fyrir undanþágum frá friðlýsingum (sem er þó háð samþykki Náttúruverndarstofnunar). (ii) Umhverfisstofnun myndi framvegis veita framkvæmdaleyfi/starfsleyfi fyrir virkjanir undir 1 megavatti án samráðs við sveitarfélög.

4. Athugasemdir við skýrslu starfshóps um rammaáætlun en frestur til að skila inn athugasemdum er 1. febrúar 2025

Ákveðið var að stjórnin skipti með sér verkum í þessu sambandi og sendi inn athugasemdir.

5. Athugasemdir/ábendingar við Árósasamninginn. Frestur hefur verið framlengdur til 31. janúar 2025

Uppfærsla á Árósasamningnum er í burðarliðnum. Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt samninginn en látið undir höfuð leggjast að fullgilda hann lögformlega. Árósasamningurinn kveður á um rétt almennings til aðkomu að málum sem varða umhverfi og náttúru/umhverfis- og náttúruvernd.

6. Umsókn um styrk til Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis, en opnað hefur verið fyrir styrki og skulu umsóknir berast fyrir 10. febrúar 2025 í rafrænu formi

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands hafa alltaf fengið styrk/rekstrarstyrk til að standa straum af kostnaði við rekstur samtakanna. Sækja þarf um sérstakan styrk vegna lögfræðikostnaðar fyrir 10 febrúar 2025.

7. Önnur mál

Ekkert varð úr fyrirhugaðri gönguferð um næsta nágrenni Vallahverfisins í Hafnarfirði um miðjan nóvember síðastliðinn. Annars vegar setti veðrið strik í reikninginn en aðstæður breyttust einnig við óvænt þingrof og fyrirhugaðar kosningar í lok mánaðarins.

Fundi slitið kl. 18:00

Stefán Erlendsson/ritari