Þriðji stjórnarfundur 13. stjórnar NSVE var haldinn 29.10. 2025 í gegnum „Teams“ fjarfundabúnað. Fundurinn hófst klukkan 18:00.
Mættir voru stjórnarmeðlimirnir Davíð Arnar Stefánsson, Eydís Franzdóttir, Helena Mjöll Jóhannsdóttir og Stefán Erlendsson.
Eftirfarandi var rætt á fundinum: dagsetning næsta aðalfundar sem er framundan, fjármál samtakanna og fyrirhuguð innganga Hraunavina í/eða samruni við NSVE.
1. Ákveðið var að halda aðalfundinn miðvikudaginn 5. nóvember kl. 18:00 að Strandgötu 3 í Hafnarfirði. Einnig var afráðið að vera með kynningu á „núverandi og áætluðum“ virkjunarframkvæmdum í Krýsuvík og fá Orra Björnsson, bæjarfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar, til þess að flytja framsögu um málið, auk þess sem Davíð Arnar, stjórnarmaður í NSVE, fjallaði um efnið frá sjónarmiði náttúrverndar. Fundinum lyki síðan með pallborðsumræðum undir stjórn Eydísar.
2. Eydís vakti athygli á erfiðri fjárhagsstöðu NSVE vegna dómsmálsins sem samtökin höfðuðu ásamt Hraunavinum gegn framkvæmdaleyfi Voga og úrskurði ÚUA varðandi Suðurnesjalínu 2. Skuldir NSVE af þessum sökum nema um 4 milljónum króna. Það er því mikilvægt að sækja um alla mögulega styrki sem í boði eru og verður það gert. Ákveðið var að hækka árgjald samtakanna, sem hefur verið óbreytt frá stofnun þeirra, upp í 3000 krónur. Davíð Arnar lagði til að haldinn yrði sérstakur stjórnarfundur um fjármál og fjáröflun og var það samþykkt.
3. Stjórn NSVE hefur borist ósk eða beiðni frá stjórn Hraunavina um að Hraunavinir fái að ganga/renna inn í NSVE og sameinast þannig samtökunum sem héldu engu að síður nafninu. Þetta mæltist vel fyrir og sá enginn neina meinbugi á því. Ef til vill væri þó rétt að hafa erindið formlegt. Nefnt var í þessu sambandi að vonandi bærist NSVE liðsstyrkur með slíkri sameiningu og fleiri hendur að leggjast á árarnar í náttúruverndarbaráttunni. Ekki veitti af. Eydís hefði borið hitann og þungann af starfi samtakanna undanfarin ár og löngu tímabært að dreifa vinnuálaginu betur.
Fundi slitið kl. 19:00
Stefán Erlendsson/ritari