Stjórnarfundur miðvikud. 10. desember 2025

posted in: Fundargerðir 2025 | 0

Stjórnarfundur miðvikudaginn 10. desember 2025

Fyrsti stjórnarfundur 14. stjórnar NSVE var haldinn 10.12. 2025 á heimili Davíðs Arnar Stefánssonar að Suðurgötu 38 í Hafnarfirði. Fundurinn hófst klukkan 16:00 og voru ljúffengar „steiktar“ vöfflur með þeyttum rjóma í boði húsráðanda.

Mættir voru stjórnarmeðlimirnir Davíð Arnar Stefánsson, Eydís Franzdóttir, Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Þorvaldur Örn Árnason og Stefán Erlendsson.

Sérstakur gestur á fundinum var Björg Eva Erlendssdóttir framkvæmdastýra Landverndar.

Boðað var sérstaklega til þessa fundar til að ræða erfiða fjárhagsstöðu NSVE.

Eydís tæpir á stöðunni og upplýsir fundinn m.a. um að félagsgjöld hafi skilað sér betur en vonir stóðu til. Samtökin hafi einnig fengið 700 þúsund króna rekstrarstyrk á síðasta ári. Staðan sé engu að síður alvarleg og útistandandi skuld samtakanna við hana persónulega – vegna kostnaðar samfara málarekstri fyrir dómstólum – nemi 3.763.000.- kr.

Davíð Arnar spyr hvað sé hægt að gera til að rétta fjárhaginn af.

Eydís nefnir að einn möguleiki væri að NSVE stæði fyrir skipulögðum gönguferðum í íslenskri náttúru gegn hóflegu gjaldi.

Björg Eva leggur til að þetta verði gert í samstarfi við Landvernd – í því gætu legið einhverjir fjármunir.

Viðstaddir voru sammála um að nærtækast væri að fara í slíkar gönguferðir á Krýsuvíkursvæðinu.

Davíð Arnar býður sig fram til að skipuleggja gönguferðir á Krýsuvíkursvæðinu – sem tengiliður og leiðsögumaður – en hann gjörþekkir svæðið. Að hans mati ætti að leggja áherslu á gönguleiðir sem lenda undir jarðýtum ef að líkum lætur. Hann muni undirbúa verkefnið þannig að það verði styrkvænt.

Rætt hefur verið um það á Alþingi að fella beri niður styrki, þ.m.t. rekstrarstyrki fyrir félagasamtök sem fara svo í mál við ríkið, segir Eydís, en ef svo illa færi mætti hugsanlega sækja um slíkan styrk til Hafnarfjarðarbæjar t.a.m. gegn því að NSVE merki gönguleiðir á Krýsuvíkursvæðinu.

Björg Eva talar um að styrkur frá Landvernd gæti numið allt að einni milljón króna.

Fundurinn sammælist um mikilvægi þess að varðveita Reykjanesfólkvang.

Ákveðið er að hittast aftur fljótlega og ræða frekar fjárhagsstöðuna og leiðir til fjáröflunar.

Fundi slitið kl. 18:00

Stefán Erlendsson/ritari

PS. Nýkjörin stjórn skipti ekki með sér verkum eins og venja er til á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund. Það bíður því næsta stjórnarfundar.