Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands harma þá aðför sem gerð er að náttúruperlum Suðvesturlands í þingsályktunartillögu að Rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. Sú tillaga sem ríkisstjórn Íslands hefur nú lagt fyrir alþingi býður þeirri hættu heim að landshlutanum verði umbreytt í samfellt iðnaðar- og orkuvinnslusvæði frá Reykjanesi til Nesjavalla við Þingvallavatn.
Verði af jarðvarmavirkjunum á þeim svæðum sem sett eru í orkunýtingaflokk, tapast ómetanleg náttúruverðmæti sem t.a.m. gætu gagnast til uppbyggingar á ferðaþjónustu í landshlutanum. Að ráðast inn í friðlýsta fólkvanga með virkjanir rýrir verulega mögleika íbúa svæðisins til að njóta ósnortinnar náttúru í nágrenni við heimili sín.
Auk óafturkræfra náttúruspjalla yrðu jarðvarmavirkjanir þessar að öllum líkindum ekki sjálfbærar og á engan hátt hluti þess græna hagkerfis sem ríkisstjórnin hefur boðað og segir sig standa fyrir. Náttúruperlur þessar eru m. a. Sveifluháls í Krýsuvík, Eldvörp, Stóra-Sandvík og Sandfell sunnan Keilis.
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands hvetja ríkisstjórnina eindregið til þess að gera breytingar á þingsályktunartillögunni og færa náttúruperlurSuðvesturlands yfir í verndarflokk eða biðflokk. Náttúruverndarsamtökin hvetja alþingismenn eindregið til þess að samþykkja tillögu ríkisstjórnarinnar ekki óbreytta og koma náttúru Íslands til varnar, sem þeim hlýtur að bera skylda til. Rétt er að hinir 230.000 íbúar landshlutans fái notið þeirra náttúruperlna sem hann hefur að bjóða, en ekki sveðjunni brugðið og höggvið í sömu knérunn. Nóg er komið af náttúrueyðingu á Suðvesturlandi.
Stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands